Fréttir

Íris Ósk Norðurlandameistari unglinga
Sund | 8. júlí 2012

Íris Ósk Norðurlandameistari unglinga

Íris Ósk Hilmarsdóttir varð Norðurlandameistari unglinga í 200m baksundi í morgun.

Síðasti dagurinn á NMÆ í dag og Íris Ósk Hilmarsdóttir varð Norðurlandameistar unglinga i í 200m baksundi rétt í þessu. Hún synti á timanum 2:23,22 sem er hennar besti tími. Til hamingju Íris og vel gert.

Birta synti líka í morgun og náði sínum besta tíma í 400m skriðsundi og lenti í 5. sæti. 

Vel gert stelpur og þið getið verið stoltar af árangri ykkar á þessu móti og eruð félaginu ykkar og landi til sóma!