Sund | 13. desember 2009
Íslandsmet hjá Sindra
Sindri Þór Jakobsson var rétt í þessu að setja glæsilegt íslandsmet í 200m flugsundi þega hann synti á 1.57.21, glæsilegt sund hjá Sindra. Davíð Hildiberg Aðalsteinsson synti 100m baksund og var alveg við sinn besta tíma. Á morgun er lokadagur mótsins, þá syndir Davíð 200m skriðsund og Sindri 50m flugsund. Áfram Ísland.