Íslandsmet í Prag hjá Sindra Þór
Sindri Þór Jakobsson setti nýtt glæsilegt Íslandsmet í 200 metra flugsundi þegar hann synti á 2:02,97 á EMU í morgun. Sindri varð í 19. sæti í greininni. Eldra metið átti Sindri sjálfur en það var 2:03,48 mínútur og var sett á Smáþjóðaleikum á Kýpur nú í byrjun júní.Glæsilegt hjá þér Sindri :-) Til hamingju með flottan árangur, stjórn og þjálfarar.
Mynd frá Smáþjóðaleikunum á Kýpur í júní sl. eftir sigur í 200m flugsundi.