Fréttir

Sund | 2. maí 2010

Íslandsmót Garpa

Sigmar Björnsson tók þátt í Íslandsmóti Garpa um helgina á Siglufirði. Hann synti í flokki 50-54 ára og stóð sig frábærlega eins og sjá má hér að neðan. Sigmar heldur merki ÍRB á lofti hjá görpunum og á mikinn heiður skilið fyrir það, stjórn og þjálfarar óska honum innilega til hamingju með árangurinn.

50 bringa - silfur
100 bringa - gull
200 bringa - gull
100 fjór - gull