Fréttir

It´s the final countdown!
Sund | 28. mars 2013

It´s the final countdown!

 

Nú eru aðeins 14 dagar þangað til ÍM50 hefst. Sundmennirnir eru á stífum æfingum núna í páskafríinu sínu en þessi tími gerir þeim kleift að hvílast vel á milli æfinga og njóta þess að vera í fríi þrátt fyrir að vera í undirbúningi fyrir stærsta mót ársins. 
 
Eftir tæplega tvær vikur mun reyna á hvort undirbúningur síðustu mánaða hefur skilað árangri. Lokaundirbúningurinn er mjög mikilvægur. Sundmenn þurfa að fylgjast vel með á hve margar æfingar þeir eiga að mæta, hvernig þeir eiga að æfa á hverri æfingu, hafa markmið sín í huga og einnig fylgjast með breytingum á æfingartöflunni.
 
Auka svefn, hvíld, nudd, hollur matur og andlegur undirbúningur skiptir líka höfuðmáli. Mikil vinna hefur verið unnin síðast liðna mánuði. Höldum áfram með jákvætt hugarfar allt til loka. Haldið einbeitingunni! Veitið litlu tæknilegur hlutum enn meiri athygli. Við erum næstum því komin á leiðarenda!