Fréttir

Jólafrí og jólaæfingar
Sund | 13. desember 2012

Jólafrí og jólaæfingar

Nú líður að jólum og þá fara sumir hópar í jólafrí en aðrir fá sérstaka jólaæfingatöflu. 

Háhyrningar og allir hópar þar fyrir neðan fara á síðustu æfinguna fyrir jól fimmtudaginn 20. desember og byrja svo aftur 7. janúar. 

Framtíðarhópur mætir á æfingar samkvæmt jólaæfingatöflu Framtíðarhóps, hugsanlega bætast þó einhverjar æfingar við það sem er á töflunni en þjálfari lætur þá vita af því.

Keppnishópur og Landsliðshópur æfir samkvæmt jólaæfingatöflu Landsliðs-og Keppnishóps.