Fréttir

Jólamót á morgun-mótaskrá
Sund | 4. desember 2012

Jólamót á morgun-mótaskrá

Jólamót ÍRB verður haldið í Vatnaveröld á morgun, miðvikudaginn 5. desember. Upphitun byrjar klukkan 16.45 og mótið hefst klukkan 17.30. Allir sundmenn 10 ára og yngri fá þáttökuverðlaun og allir þáttakendur fá mandarínu frá sérstökum gesti. Mótaskrá með röðun sundmanna og tímasetningum má nálgast hér.

Um helgina (7.-9. des) fer svo fram aðventumót ÍRB.  Á þessu móti geta sundmenn synt greinar til að ná hærri Ofurhugaviðurkenningunum á lokahófinu okkar í maí. Einnig er þetta mót sett á í desember svo að sundmenn geti sett Keflavíkur-, UMFN- eða ÍRB-met svo við tölum nú ekki um íslensk met í öllum aldursflokkum. Nánari tímasetniningar og lengd hluta á aðventumótinu koma á netið í dag!