Fréttir

Karen stigahæst á Fjölnismóti
Sund | 1. mars 2016

Karen stigahæst á Fjölnismóti

Afreks og Keppnishópur ÍRB keppti á sundmóti Fjölnis í Laugardalnum um síðustu helgi.  
 
Sundmennirnir kepptu í  fáum greinum og jafnvel greinum sem þau eru alla jafna ekki vön að keppa í. 
 
Ágætis bætingar voru í nokkrum greinum og unnu sundmennirnir til margra verðlauna. Bestum 
 
árangri náði Karen Mist Arngeirsdóttir, en hún varð stigahæst í flokki stúlkna 15 - 17 ára fyrir 
 
samanlagðan árangur sinni í 50, 100 og 200m bringusundi, en þessi árangur var jafnframt betri en 
 
besti árangur kvenna í opnum flokki.