Fréttir

Kristófer sundmaður mánaðarins í Landsliðshópi
Sund | 4. desember 2012

Kristófer sundmaður mánaðarins í Landsliðshópi

 

Kristófer Sigurðsson er sundmaður mánaðarins í Landsliðshópi að þessu sinni.

1) Hve lengi hefur þú stundað sund?

Síðan ég var 6 ára.

 

2) Hve margar æfingar stefnir þú á að ná á viku núna?

Svona 9

 

3) Hvaða aðrar æfingar stundar þú til þess að hjálpa þér í sundinu?

Gymmið kemur þar sterkt inn.

 

4) Hvaða markmiði ert þú að vinna að fyrir næstu 6 mánuði?

750 FINA stig.

 

5) Hvaða markmiði ert þú að vinna að fyrir næstu tvö ár?

800 FINA stig og svo einhver mót erlendis.

 

6) Hver er besta upplifun sem þú hefur átt með sundliðinu?

Allar utanlandsferðir.

 

7) Hvaða mót sem þú hefur farið á heldur þú mest upp á?

Ekki neitt sérstakt.

 

8) Hvaða sund eða annan árangur hefur þú verið ánægðust með?

400 skrið á ÍM25.

 

9) Hverjar eru uppáhalds greinarnar þínar?

100, 200 og 400 skrið.

 

10) Hvað fær þig til þess að vakna á morgnanna og mæta á æfingu?

Mamma mín eða pabbi.

 

11) Til hvaða sundmanna lítur þú mest upp til?

Allra þeirra sem hafa náð í gullpening á ólympíuleikunum.

 

12) Til hverja utan við sundið lítur þú mest upp til?

Sacha Baron Cohen.

 

13) Hvert í heiminum langar þig mest til þess að ferðast?

Eitthvert í Asíu.

 

14) Er eitthvað annað en sund sem þú hefur ástríðu fyrir?

Fara á skíði.

 

15) Hver er uppáhalds bókin þín og bíómynd?

Viltu vinna milljarð og svo...Viltu vinna milljarð.

 

16) Hvert er uppáhalds nammið þitt?

Veit ekki hvað það heitir en það er saltlakkrís með hörðu súkkulaði inní.

 

17) Hvernig myndu vinir þínir lýsa þér í einu orði?

Bestur

 

18) Hver er uppáhalds teiknimyndapersónan þín, úr bókum, sjónvarpsþáttum eða bíómyndum?

Tímon