Fréttir

Sund | 3. júní 2007

Kveðja til sundmanna í Monaco

Stjórn sunddeildar Keflavíkur sendir sendir sundmönnum sínum sem nú keppa á Smáþjóðaleikunum sem fram fara í Monaco dagana 5. - 9. júní baráttukveðjur með von um gott gengi.

Þrír sundmenn úr okkar röðum munu keppa á Smáþjóðaleikunum. Þessir sundmenn eru: Birkir Már Jónsson, Davíð Hildiberg Aðalsteinsson og Erla Dögg Haraldsdóttir. Erla Dögg og Birkir Már eru í þriðja skiptið að taka þátt í Smáþjóðaleikum en Davíð Hildiberg er að fara í fyrsta skipti. Samkvæmt startlista mótsins eru líkur þeirra á verðlaunum all góðar.

Fylgjast má með úrslitum á síðu leikanna.