Kveðjuhóf og sigurhátíð
	Miðvikudaginn 8. júlí ætlum við að koma saman, kveðja Anthony, gleðjast yfir frábærum sigri á AMÍ og hafa gaman saman.
	
	Hver og einn skráir sig og millifærir fyrir sig og sína fjölskyldu. Skráningu og millilfærslu þarf að vera lokið í síðasta lagi sunnudaginn 5. júlí. Aðeins verður pantaður matur fyrir þá sem millifæra, skráning dugir ekki. ÍRB býður upp á gos með matnum og greiðir niður matinn að hluta.
	
	Við verðum í K-salnum og byrjum kl. 18:30.
	
	Ási í Menu sér um matinn en boðið verður upp á:
	
	Hrikalega djúsi 90 g hamborgarar með tilheyrandi meðlæti
	Engifermarineraðar kjúklingabringur á spjóti
	Hunangs-sinnepssósu
	
	Meðlæti:
	Bakaðar kartöflur, íslenskt smjör, sumarsalat,
	maískorn.
	
	Verð á mann er kr. 1.900, borga þarf fyrir alla, líka sundmanninn.
	
	Millifærsla verður hafa borist sunnudaginn 5 júlí. Reikningsnúmer fyrir millifærslu: 0142-26-010236  kt 480310-0550
	
	Skráningarsíða:
	https://docs.google.com/forms/
	
	
	
	Hlökkum til að sjá sem flesta.
	
	Stjórn Sundráðs ÍRB

 
						