Fréttir

Langsundmót á laugardaginn
Sund | 4. febrúar 2015

Langsundmót á laugardaginn

Á laugardaginn verður  langsundmót ÍRB haldið í Vatnaveröld. Þar munu Sverðfiskar, Háhyrningar, Framtíðarhópur, Keppnishópur, Úrvalshópur og Landsliðshópur keppa.

Sverðfiskar keppa í 200 skrið
Háhyrningar keppa í 400 skrið
Framtíðarhópur keppir í 800 skrið
Eldri hópar keppa í 1500 skrið

Sundmenn mæta í upphitun á mismunandi tímum til þess að stytta þann tíma sem sundmenn og þjálfarar þurfa að dvelja í lauginni.

Keppnishópur, Úrvalshópur og Landsliðshópur byrja og er mæting hjá þeim klukkan 7:45 og hefst mótið klukkan 8:30 (1500 skrið).

Sverðfiskar og Háhyrningar eiga að vera tilbúnir í upphitun klukkan 10:00 og fá um 20 mín upphitun (200 og 400 skrið).

Framtíðarhópur á svo að vera tilbúinn í upphitun um 11:00 og fær um 20 mín upphitun (800 skrið).

Mótasksrá-drög