Fréttir

Sund | 15. nóvember 2011

Langsundmót í 25m laug á föstudaginn

Mikilvægt sundmót fyrir alla í Afrekshóp, Framtíðarhóp og suma í Eldri hóp og Háhyrningum verður næsta föstudag í Vatnaveröld. Þetta er formlegt mót og mikilvægt fyrir sundmenn sem stefna á að bæta við stigum í XLR8 og Ofurhuga fyrir lok ársins.

 

Upphitun hefst klukkan 16.30 en mótið hefst klukkan 17.30. Mótskrá verður sett á vefinn fljótlega.

 

Sjáumst!