Fréttir

Lok tímabilsins hjá sundhópum
Sund | 4. maí 2013

Lok tímabilsins hjá sundhópum

 

Þó ótrúlegt sé er komið að lokum tímabilsins hjá sumum hópum.

Eftir Landsbankamót nálgast svo lokin á æfingatímabilinu hjá flestum hópum.

Tímabilið 2012/2013 hefur verið frábært hjá okkur á margan hátt. Mikil ánægja hjá sundmönnum á öllum aldri, árangur í lauginni, nýr vinskapur, skemmtilegir dagar og persónulegar framfarir.

 

Við vonumst til að sjá ykkur öll aftur á tímabilinu 2013/2014. Við erum fremsta aldursflokkasundlið landsins og veitum frábæra undirstöðu fyrir árangursríka framtíð bæði ofaní og utan laugar.

 

Lok tímabilsins verða sem hér segir hjá einstökum hópum:

 

Gullfiskar, Silungar, Laxar og Sprettfiskar

Þessir hópar ljúka æfingum aðra vikuna í maí. Það eru engar æfingar í þessum hópum eftir Landsbankamót. Í sumar verður ÍRB með sumarnámskeið sem verður auglýst sérstaklega.

 

Sundmenn sem ná viðmiðum í Flugfiska á Landsbankamóti geta valið annað hvort að fara í sumarfrí og hefja æfingar í haust með Flugfiskum eða færa sig strax í Flugfiska og æfa með þeim þar til þau ljúka æfingum í lok maí.

 

Flugfiskar og Sverðfiskar

Þessir hópar æfa þar til í síðustu vikunni í maí og fara á Akranesleikana. Eftir Akranesleikana eru engar æfingar.

Sundmenn sem ná viðmiðum í Háhyrninga á Akranesleikunum geta valið að fara í sumarfrí og byrja að æfa með Háhyrningum í haust eða að færa sig strax í Háhyrninga og æfa með þeim þar til þeir fara í sumarfrí í lok júní.

 

Háhyrningar

Þessi hópur æfir þar til í lok júní. Engar æfingar eru eftir AMÍ.

Sundmenn sem ná viðmiðum fyrir Framtíðarhóp á AMÍ geta valið að fara í sumarfrí og byrja að æfa með Framtíðarhóp í haust eða byrja strax að æfa með Framtíðarhóp.

 

Efstu hóparnir

Samkvæmt dagatali fara þessir hópar í sumarfrí laugardaginn 20. júlí, hugsanlega verða einhverjar breytingar á því en það verður auglýst þegar nær dregur en verður um þetta leyti.