Fréttir

Sund | 14. maí 2010

Mætum öll kl. 15 í dag að gera klárt fyrir mótið

Kæru foreldrar !

Sunddeild ÍRB vill þakka fyrir góða mætingu og jákvæðni á síðasta foreldrafundi, þegar fólk var beðið að starfa við Sparisjóðsmótið.

Því eins og við vitum öll, þá vinna margar hendur létt verk.

Nú viljum við minna fólk á að gleyma ekki þeirri vinnu sem það skráði sig í um helgina.

Mótið verður gríðarlega fjölmennt og því er það okkar metnaðarmál að allt gangi sem allra best.

Enn vantar fólk til starfa á föstudeginum kl. 15:00 við að gera laugina klára, bera stóla borð ofl.

Hlökkum til að vinna með ykkur á besta sundmótinu.

Sundráð ÍRB