Meira af metum og lágmörkum.
Góður árangur náðist á TYR móti Ægis sem fram fór í Laugardalnum helgina 02. – 03. október. Þangað sendi ÍRB eingöngu þrjá efstu hópana. Keppt var í tveimur aldursflokkum og í opnum flokki. Veitt voru verðlaun fyrir fyrstu 3 sætin í flokki 12 ára og yngri en stigahæstu keppendur fengu verðlaun í flokki 13 ára og eldri og í opnum flokki. Sundfólkið stóð sig afar vel á mótinu og er í góðum gír fyrir komandi vetur. Verðlaun á mótinu voru veitt af Aquasport og TYR sundvöruframleiðandanum. Við hjá ÍRB áttum fjóra af þeim ellefu verðlaunahöfum sem voru í þessum flokkum.
Klaudia Malesa náði merkum áfanga þegar hún náði lágmörkum í Tokyo 2020 hóp SSÍ, en við hjá ÍRB eigum nú orðið alls 7 sundmenn í þessum hópi. Tveir nýjir sundmenn bættust síðan í Lyngby hópinn okkar, en hann telur nú orðið 13 sundmenn sem eru á leiðinni til Lyngby í janúar.
Alls féllu sex innanfélagsmet á mótinu. Eva Margrét Falsdóttir hélt áfram að bæta metum í safnið en hún setti alls fjögur met í flokki hnáta 10 ára og yngri. Í 100m bringusundi, 1:31,62 og 50m flugsundi, 36,36 en bæði þessi met voru bæði ÍRB og Keflavíkurmet. Síðan setti Sunneva Dögg Friðriksdóttir met í 50m skriðsundi í flokki stúlkna 15 – 17 ára, 27, 41 sem var bæði ÍRB og Njarðvíkurmet,
Telpnaflokkur:
1. sæti: Stefanía Sigurþórsdóttir, ÍRB með 1160 stig
2. sæti: Marta Buchanevic, Ægimeð 1.136 stig
3. sæti: Klaudia Malesa, ÍRB með 974 stig
Opinn flokkur:
1. sæti: Eygló Ósk Gústafsdóttir, Ægi með 1572 stig
2. sæti: Inga Elín Cryer, Ægi með 1403 stig
3. sæti: Eydís Ósk Kolbeinsdóttir, ÍRB með 1383 stig
4. sæti: Bryndís Bolladóttir, Óðni með 1291 stig
5. sæti: Sunneva Dögg Friðriksdóttir, ÍRB með 1261 stig