Fréttir

Meta og lágmarkamót ÍRB
Sund | 14. desember 2015

Meta og lágmarkamót ÍRB

Meta- og lágmarkamótin okkar fara fram í Vatnaveröldinni 15. og 16. des næstkomandi. Þann 15. keppum við í 25m laug og þann 16. þá keppum við í 50m laug. Á þessum mótum er síðustu forvöð til þess að ná in í Lyngby hópinn, og jafnframt ef sundmenn eru að reyna við einhver met áður en þeir færast upp um flokk um áramótin. Upphitun hefst báða dagana kl. 17:00 og mótin kl. 17:30. Einhver tilfærsla verður því á æfingum þessa daga sem þjálfarar láta viðkomandi hópa vita af.

 

Mótaskrá þriðjudagur

Mótaskrá miðvikudagur