Fréttir

Mikilvægir dagar næstu 6 vikur!
Sund | 14. maí 2015

Mikilvægir dagar næstu 6 vikur!

Það eru margar ástæður fyrir því að talan 6 er mikilvæg í dag. 
 
1) Það eru 6 vikur þangað til AMÍ hefst og meirihluti sundmannanna sem æfa núna eru að undibúa sig fyrir það. Þetta er mjög mikilvægt mót og þetta er í eina skiptið á árinu sem við sem lið að sigri.
 
2) 66 er sá fjöldi æfinga sem eftir er fyrir sundmenn í afrekshópunum tveimur fyrir AMÍ og helmingi minna eftir hjá Framtíðarhópi og Háhyrningum. Þetta eru tækifærin sem eftir eru fyrir sundmenn til að bæta sig fyrir AMÍ. 
 
3) 6 sundmenn í Landsliðshópi keppa á Smáþjóðaleikunum eftir 2,5 vikur, í Baku eftir 6 vikur og á NÆM eftir 8 vikur.
 
4) Akranesleikar eru eftir aðeins 2 vikur og það er lokamótið á tímabilinu fyrir um 60 af yngri sundmönnum okkar. 
 
5) Vormót ÍRB er síðasta mótið til þess að ná lágmörkum fyrir .ær 6 greinar sem sundmenn mega keppa í á AMÍ og það eru bara 3,5 vikur í vormótið.
 
6) Finndu 6 ástæður fyrir því hvers vegna þú mátt ekki missa af æfingu í dag!