Fréttir

Mótaskrár fyrir aðventumót
Sund | 6. desember 2012

Mótaskrár fyrir aðventumót

 

Núna um helgina 7. - 9. desember verður Aðventumót Sverðfiska, Háhyrninga, Framtíðarhóps, Áhugahóps, Keppnishóps og Landliðashóps. Mótið er í fimm hlutum og hefst á föstudagssíðdegi.

Á þessu móti geta sundmenn synt greinar til að ná hærri Ofurhugaviðurkenningunum á lokahófinu okkar í maí. Einnig er þetta mót sett á í desember svo að sundmenn geti sett Keflavíkur-, UMFN- eða ÍRB-met svo við tölum nú ekki um íslensk met í öllum aldursflokkum.Mótið verður með jólalegu ívafi og langar okkur til að gera okkur glaðan dag á sunnudeginum eftir síðasta hlutann með okkar árlega hlaðborði.

Tímasetningar mótsins og mótaskrár:

Föstudagur
Upphitun 16:30
Mót 17:30 – 20:15
Mótaskrá 1. hluti


Laugardagur
Upphitun 8:00
Mót 9:00-12:40
Mótaskrá 2. hluti
 

Upphitun 15:00
Mót 16:00-18:40

Sunnudagur
Upphitun 8:00
Mót 9:00-10:50
Mótasrká 4. hluti

Upphitun 14:00
Mót 15:00-17:10
Mótaskrá 5. hluti

Kökuhlaðborð 17:00-18:00
 

Okkur langar að sameinast í því að allir komi með eitthvað á hlaðborð þennan dag eins og síðasta ár sem var mjög vel heppnað. Við ætlum að vera í Vatnaveröld á milli 17 og 18 sunnudeginum og borða saman. Sundráð kaupir djús og það verður hellt upp á kaffi en allir koma með eitthvað á veisluborðið. Gott væri að foreldrar sundmanna í Sverðfiskum, Háhyrningum, Framtíðarhópi og Áhugahópi komi með eitthvað brauðkyns. Brauðtertur og annað brauðkyns s.s. réttir og rúllur eru velkomnar en við höfum ekki aðstöðu til að hita neitt upp. Flatkökur með hangikjöti eða brauð og salad er líka góð hugmynd. Og ekki gleyma að foreldrar sundmanna í Landsliðs- og Keppnishópi koma með eitthvað sætt eins og kökur.

Við biðjum alla foreldra um að skrá sig á meðfylgjandi slóð þannig að við getum haldið utan um hvað hver kemur með og hverjir hafa skráð sig. Vinsamlega skráið ykkur fyrir föstudaginn 7.desember.

https://docs.google.com/spreadsheet/viewform?hl=en_US&formkey=dHpDTHNFQ2owdS12LUZ5Z0c1YUxzRXc6MQ#gid=0

Einnig hvetjum við alla foreldra sem verða í Vatnaveröld þessa helgi að koma og bjóða sig fram til starfa á þessu móti. Dómarar og tæknifólk verður að störfum og svo vantar alltaf riðlastjóra og hlaupara. Endilega setjið ykkur í samband við Fal Daðason á mótinu eða í síma 898 5768