Fréttir

Sund | 20. september 2009

Myndir sunddeildar á flakkara

Nú er hægt að fá lánaðan utanáliggjandi harðan disk (flakkara) og taka afrit af þeim myndum sunddeildarinnar sem þú hefur áhuga á. Harði diskurinn inniheldur myndir frá árinu 2002. Flakkarinn er auðveldur í notkun, honum er einungis stungið í samband við tölvu með USB snúru og þá er hægt að skoða myndir og taka afrit. Þeir sem hafa áhuga á að fá flakkarann lánaðan eru beðnir um að hafa samband við Sigurbjörgu í síma 849 3822 eða 421 5430. Flakkarinn er lánaður í viku til hvers aðila og mikilvægt að allir virði þessi tímamörk. Þar sem flakkarinn verður á flakki tekur sunddeild Keflavíkur enga ábyrgð gagnvart vírusum og eru þeir sem fá flakkarann lánaðan beðnir að huga að þeim málum.