Fréttir

Náttfatapartý Sverðfiska
Sund | 14. nóvember 2013

Náttfatapartý Sverðfiska

Í haust hittust stelpurnar í Sverðfiskum í Akurskóla heima hjá Þórhildi Ernu eftir æfingu og héldu náttfatapartý. Stelpurnar mættu með bangsa og góða skapið, bökuðu saman orkustangir, horfðu á eina mynd og fengu popp.  Ótrúlega flottar.  Þar sem það hefur fjölgað í Sverðfiskum síðan þá verður jafnvel enn meira fjör í næsta partýi sem verður eftir jól.