Fréttir

Sund | 10. nóvember 2010

Nú styttist í IM25 - hlekkur á bein úrslit

Nú styttist í IM25. Við þökkum þeim sem hafa skráð sig til leiks við matseld og á bakka og hvetjum aðra að skrá sig til leiks, eða bæta við sig hlutum með því að senda póst á gunnlaugur@isam.is, á www.sundsamband.is er hægt að sjá hvaða stöður eru lausar á bakka.

Ekki síður, þá hvetjum við fólk til að mæta í Laugardalinn og hvetja okkar sundfólk til dáða. Auk þess er hægt að fylgjast með beinum úrslitum á netinu hér.

Við óskum sundmönnum og þjálfurum góðs gengis og öllum góðrar skemmtunar. ÁFRAM ÍRB!