Fréttir

Sund | 10. maí 2010

Nýjar fréttir á heimasíðu Sparisjóðsmótsins

Á heimasíðu Sparisjóðsmóts ÍRB eru nú komnar nýjar upplýsingar. Þar má finna nýjar tímasetningar en vegna fjölda skráninga hefur þurft að hliðra tímasetningu örlítið til. Þá eru komnir inn keppendalistar og þjálfarar beðnir um að fara vel yfir þá og láta vita á netfangið irb@visir.is ef eitthvað er athugavert við þá. Einnig má finna upplýsingar um tímasetningar greina og fjölda frá hverju liði. Mótaskrár verða settar inn fljótlega svo fylgist vel með síðunni.