Nýr félagsbúningur í sundinu
Pöntun á nýjum félagsbúningi Sundráðs ÍRB
Laugardaginn 28. desember á milli kl. 10 og 11 fer fram mátun og pöntun á nýjum félagsbúningi ÍRB frá Speedo. Aðilar úr stjórn Sundráðs ÍRB verða í Vatnaveröld og taka niður pantanir.
Við pöntun verður að greiða með peningum eða millifæra á reikning 0121-15-553731 kt. 500894-2379 í síðasta lagi 1. janúar 2014. Ef millifært er þarf að senda kvittun úr heimabanka á netfangið mundarobb@gmail.com með kt. sundmanns sem tilvísun.
Athugið að hægt er að láta millifæra úr sundsjóði sundmanns fyrir félagsbúningi. Látið vita við pöntun hvort nota eigi sundsjóð.