Fréttir

Sund | 12. nóvember 2010

Öðru degi á ÍM25 lokið

Nú er öðrum degi á ÍM 25 lokið og hafa sundmennirnir okkar staðið sig mjög vel. Eins og í gær var mikið um bætingar og er greinilegt að sundmennirnir okkar eru í góðu formi.  Í 200 metra flugsundi var Soffía Klemenzdóttir var í 2. sæti á tímanum 2.21.61 og Jóna Helena Bjarnadóttir var í 3. sæti á tímanum 2.22.27. Í 200 metra bringusundi var Ólöf Edda Eðvarðsdóttir í 2. sæti á tímanum 2.40.41 og María Ása Ástþórsdóttir var í 3. sæti á tímanum 2.52.96. Til hamingju stelpur.