Fréttir

Sund | 3. febrúar 2011

Öflugt stuðningslið sunddeildar

Krakkarnir í Afrekshóp hittu Fal í gær og fóru yfir fleiri leiðir til þess að koma í veg fyrir meiðsli og gera líkamann sterkari. Við í sunddeildinni erum mjög heppin að hafa sterkt suðningslið til þess að styðja við öflugasta sundfólkið okkar og sjúkraþjálfun er einn hluti af þessum mikilvæga stuðningi. Allir lærðu eitthvað gagnlegt og útlitið er bjart á þessu sviði.