Fréttir

Ofurhugi janúar mánaðar
Sund | 9. febrúar 2013

Ofurhugi janúar mánaðar

Meðfylgjandi er Ofurhugi janúarmánaðar stútfullur af áhugaverðu efni. Endilega lesið vel og kynnið ykkur starfið sem fram fer í okkar frábæra félagi.
 
Þessa dagana erum við að endurnýja samninga við styrktaraðila okkar. Þeir eru misstórir en okkar helstu styrktaraðilar hingað til hafa verið Landsbankinn, Samkaup, Speedo, HS veitur og HS orka. Við höfum einnig minni en alveg jafn mikilvæga styrktaraðila sem eru með skilti við útilaugina í Vatnaveröld. Ef einhver í foreldrahópnum hefur áhuga á að setja sitt fyrirtæki sem styrktaraðila með því að setja upp skilti við laugina endilega hafið samband við undirritaða. Við fögnum öllum aðilum sem vilja styrkja gott starf og foreldrar í hópnum okkar gætu tengst einhverjum fyrirtækjum sem okkur hefur ekki dottið í hug að sækja til. Munum að margt smátt gerir eitt stórt.