Fréttir

Sund | 1. október 2009

Ólöf Edda með meyjamet

Ólöf Edda Eðvarðsdóttir ÍRB gerði sér lítið fyrir og sló 16 ára gamalt Íslandsmet Láru Hrundar Bjargardóttur í flokki meyja í 200m bringusunid í 25metra laug á Innanfélagsmóti ÍRB í kvöld.  Ólöf Edda synti á tímanum 2:45,41 sem er frábær tími, tími Láru var 2:46,87 Ólöf Edda er búin að vera að gera góða hluti í sundinu undanfarna mánuði og greinilegt að þar er á ferðinni mikil hæfileikastúlka. Margir aðrir góðir tímar litu dagsins ljós og eru sundmenn ÍRB óðum að nálgast gott form.Úrslit frá mótinu