Fréttir

Sund | 9. október 2011

Ólöf Edda með telpnamet í Færeyjum

ÍRB átti þrjá fulltrúa í sundlandsliði Íslands sem atti kappi við Færeyinga um helgina.  Þær Jóhanna Júlía Júlíusdóttir, Jóna Helena Bjarnadóttir og Ólöf Edda Eðvarðsdóttir stóðu sig allar með prýði og lögðu sitt af mörkum í glæsilegum sigri íslenska liðsins á því færeyska.  Stúlkurnar náðu að bæta sína fyrri tíma og bætti Ólöf Edda telpnametið í 200 metra bringusundi um rúmar tvær sekúndur en fyrra met var í eigu Erlu Daggar Haraldsdóttur.