Fréttir

Sund | 28. apríl 2011

Ólöf Edda og Jóhanna Júlía keppa fyrir Ísland

Ólöf Edda og Jóhanna Júlía munu keppa fyrir Íslands hönd 29. apríl til 1. maí á móti í Lúxemborg. Þetta mót er lykilmót í undirbúningi þeirra fyrir tvö mikilvæg mót, European Youth Olympic Festival (Ólöf) og Europian Youth Championships (Jóhana). Báðar þessar sundkonur hafa sýnt talsverðar framfarir á þessu ári og eru þeir tveir sundmenn sem hafa bestu mætinguna á æfingar í öllu sundfélaginu. Þær hafa unnið hart að því að ná sæti í landsliði Íslands og við óskum þeim velfarnaðar. Ólöf mun keppa í 100 bringu, 200 bringu, 50 flug, 100 flug, 200 flug, 200 fjór og 400 fjór. Jóhanna mun keppa í 100 bak, 100 bringu, 200 bringu, 50 flug, 100 flug, 200 flug og 200 fjór. Gangi ykkur vel stelpur!