Ólöf synti á 7. besta tímanum á EYOF
Sterkt sund Ólafar Eddu á Ólympíudögum æskunnar (EYOF) færði henni sigur í B-úrslitum og sýndi í hve frábæru formi hún er. Hún var aðeins 1 sek frá Íslandsmeti sínu í telpnaflokki (5:05). Ólöf var með 7. besta tímann á mótinu sjálfu þar sem vinningstímarnir voru 4:55, 4:56 og 4:57. Þetta er frábært afrek á móti þar sem 13-14 ára stelpur eru hvað eftir annað að synda á tímum sem eru betri en Íslandsmet í opnum flokki. Til hamingju Ólöf!