Páskafrí yngri hópa
Páskafrí Háhyrninga, Sverðfiska, Flugfiska, Sprettfiska, Laxa, Silunga og Gullfiska verður 14. - 22. apríl.
Æfingar hefjast samkvæmt æfingatöflu þann 23. apríl, athugið þó að tveir frídagar fylgja strax í kjölfarið þar sem 24. apríl er sumardagurinn fyrsti og svo er 1. maí þar á eftir.
Landsbankamótið er svo rétt handan við hornið og því er mikilvægt að krakkarnir mæti vel eftir páskafrí.