Fréttir

Sund | 28. mars 2012

Páskamót í dag-lokaútgáfa mótsskrár

Páskamót ÍRB verður haldið í dag miðvikudaginn 28. mars í Vatnaveröld. Mótið er fyrir Laxa, Sprettfiska, Flugfiska og þá Sverðfiska sem vilja keppa. Upphitun hefst klukkan 17:45 og mótið kl. 18:10, gott er að mæta tímanlega fyrir upphitun. Allir þáttakendur fá páskaegg og verðlaunapening. Á mótinu munu nokkrir sundmenn úr Afrekshópi munu koma og keppa í 25m sundi sem verður gaman fyrir yngri sundmenn að sjá.

Lokaútgáfa mótsskrár fyrir Páskamót má skoða með því að smella hér.