Fréttir

Sund | 12. apríl 2011

Páskasundmót fyrir 12 ára og yngri á morgun!

Nú er komið að Pásakasundmótinu okkar.  Mótið fer fram í Vatnaveröldinni miðvikudaginn 13. apríl.

Mótinu verður  tvískipt eftir aldri: 

8 ára og yngri og byrjendur.  Upphitun  hefst kl. 17:15 og mótið kl. 17:30. Mótslok kl. 18.15

9 ára og eldri. Upphitun  hefst kl. 18:15 og mótið kl. 18:30. Mótslok kl. 20.00

 

Ekki eru veitt sérverðlaun fyrir hverja grein, en allir fá verðlaun fyrir þátttöku.

Þennan dag verður  frí á æfingum hjá sundmönnunum.