Piparkökur skreyttar
Flugfiskar, Sprettfiskar og Laxar í Heiðarskóla hittust þriðjudagskvöldið 26. nóvember í íþróttahúsinu við Sunnubraut, í fundarsalnum á annarri hæð. Allir komu með piparkökur og glassúr til að skreyta með. Við hlustuðum á jólatónlist og áttum notalega stund saman með flottu sundkrökkunum okkar. Hér eru nokkrar myndir frá þessu notalega kvöldi okkar saman.