Fréttir

Pöntun á nýjum búningum í sundi
Sund | 8. febrúar 2014

Pöntun á nýjum búningum í sundi

Pöntun á ÍRB fatnaði
 
Pöntun á ÍRB fatnaði verður næst mánudaginn 10. febrúar á milli kl. 17:30 til 18:30 í Vatnaveröld. Greitt við pöntun.
 
Athugið að þetta er síðasta pöntun þar sem við getum tryggt að fatnaður verði kominn fyrir ÍM50, Landsbankamót, AMÍ og UMÍ. Þeir sem ætla að eiga ÍRB búning fyrir þessi mót verða að panta núna.
 
Þeir sem eru að fara á þessi mót þá er ætlast til að allir eigi dökkbláan stutterma eða síðermabol. Vinsamlega hafið það í forgangi við kaup á nýjum búningum og síðan hettupeysuna.