Fréttir

Sund | 22. október 2010

Samúðarkveðjur

Stjórnarmenn, þjálfarar og sundmenn úr ÍRB  vilja votta fjölskyldum og aðstandendum innilega samúð sína  vegna fráfalls Jóhanns Árnasonar og Dagbjartar Þóru Tryggvadóttur. 

Við í sunddeildinni  nutum samvista við Jóhann í mörg ár  og þekktum hann vel. Í hugum okkar stendur nú eftir minningin um duglegan, ljúfan, lífsglaðan og yndislegan pilt, sem var öðrum góð fyrirmynd.  

Kæru fjölskyldur og aðstandendur, stórt tóm hefur myndast í lífið. Megi Guð gefa ykkur styrk og kraft til að takast á við sorgina. Blessuð sé minning þeirra.