Fréttir

Sund | 6. október 2008

Sigmar tvöfaldur Norðurlandameistari

Sigmar Björnsson varð um helgina tvöfaldur Norðurlandameistari garpa í sundi í flokki 50 - 54 ára. Á föstudaginn varð hann meistari í 100m bringusundi og á laugardaginn þá bætti hann við titli í 200m bringusundi. Jói bróðir var einnig að keppa fyrir okkar hönd, þ.e. Jóhann Björnsson og hann vann til silfurverðlauna í 100m flugsundi og varð í 4. sæti í 400m fjórsundi. Jói keppti í flokki 40-44 ára. Frábært Simmi og Jói,til hamingju :-) Stjórn og þjálfarar.

Myndin hér að neðan var tekin þegar Sigmar tók við viðurkenningu frá ÍRB, sunddeildum Keflavíkur og Njarðvíkur. Með Sigmari á myndinni er Guðmundur Jón Bjarnason, formaður Sunddeildar Keflavíkur.