Fréttir

Sund | 26. júní 2011

Sigur á AMÍ

Eftir æsispennandi lokadag þar sem hvert sund skipti máli fögnuðu sundmenn ÍRB sigri á AMÍ 2011. Þetta var sætur en naumur sigur. Það voru glaðir sundmenn, þjálfarar og foreldrar sem fóru á lokahófið og tóku við bikarnum góða. Þar voru einnig veitt fjölmörg verðlaun og var Ólöf Edda Eðvarsdóttir stigahæsta stúlkan 13-14 ára. Þá fengu sundmennirnir okkar einnig viðurkenningu fyrir framkomu og prúðmennsku á mótinu.

Frábært mót, til hamingju sundmenn.