Silfur hjá Erlu Dögg
![]() |
Erla Dögg Haraldsdóttir vann fyrstu verðlaun íslenska liðsins sem keppir á Danska meistarmótinu í Árósum. Erla bætti sig í þriðja skiptið í þessari grein þegar hún kom önnur í mark í 50m bringusundi á timanum 33,50 sem er að eins 05/100 frá Íslandsmetinu í greininni og 4/100 frá sigurvegaranum. Birkir Már Jónsson synti 200m skriðsund í undanrásum hann náði sér alls ekki á strik og var nokkuð langt frá sínum besta tíma. Á morgun keppir Erla Dögg í 200m bringusundi og Birkir í 100m skriðsundi. |