Sindri frábær, 4 gull og tvö piltamet
Sindri Þór Jakobsson var svo sannarlega að
200 fjór 2:04,12 1. sæti
400 skrið 4:03,04 synti bara undanrásir
100 flug 55,77 íslenskt piltamet - 3. sæti
200 flug 2:01,95 íslenskt piltamet - 1. sæti
1500 skrið 15:57,19 1. sæti
400 fjór 4:30,77 1. sæti
Á mótinu vann hann 4 gull og 1 brons í einstaklingsgreinum og svo tóku strákarnir í liðinu hans úti verðalun í boðsundum alls 1 gull og 4 silfur. Þeir unnu 4 x 100 fjór á 3:49,32 sem er 8 sek undir norska juniormetinu en þar sem Sindri er íslendingur þá er þetta ekki norskt met. Þar synti Sindri flugsprettinn á 54,53.
Sindri var stigahæsti sundmaður mótsins með 812 stig fyrir 200 fjór. Í mótslok þá fékk hann bikar fyrir það afrek.
Þessi árangur er náttúrulega bara frábær, sérstaklega í ljósi þess að Juniorflokkurinn í Noregi eru sundmenn 19 ára og yngri en Sindri er nýorðinn 17 ára.
Með því að vera kominn yfir 800 stig þá kemur Sindri til greina í A landsliðshóp Noregs Landsliðsþjálfarinn talaði við hann í lok móts og bauð honum að koma með liðinu í 2ja vikna æfingabúðir til Tælands í lok febrúar. Þetta mót er enn ein staðfesting á því að Sindri er mikið efni og gaman verður að fylgjast með honum í framtíðinni.
Til hamingju Sindri :-) Stjórn og þjálfarar