Fréttir

Sund | 2. mars 2011

Sjáumst á BIKAR!

Bikarkeppni SSÍ verður haldin hér á heimavelli ÍRB dagana 11.-12. mars. Keppt verður í 1. og 2. deild og er ÍRB í 1. deild. Liðin á mótinu keppa að því að ná sem felstum FINA stigum bæði í kvenna og karlaflokki. Það lið sem safnar flestum stigum vinnur bikarinn.

Það væri frábært að sjá sem flesta stuðningsmenn ÍRB mæta og styðja sundmenn okkar sem að sjálfsögðu setja markið hátt.

 

Keppnistíminn er sem hér segir:

                               Föstudagur  kl. 19.00-20.30

                               Laugardagur  kl. 11.00-13.00

                               Laugardagur kl. 16.30-18.00

 

Þeir sem geta mæta í ÍRB fatnaði eða litum-vínrauðu eða hvítu.

Stöndum þétt að baki okkar frábæra sundfólki!

Sjáumst á BIKAR!