Fréttir

Skautaferð
Sund | 29. nóvember 2012

Skautaferð

Sundkrakkarnir í Sverðfiskum og Háhyrningum fóru frábæra ferð á skauta þann 21. nóv sl. Farið var í Egilshöll og skautað í klst. og síðan var Pizzuveisla í lokin. Krakkarnir skemmtu sér afar vel þrátt fyrir byltur á svellinu og blöðrur á fótunum. Foreldrar sáu um að skutla og sækja og aðstoðuðu við Pizzuborðið og á svellinu. Takk fyrir frábæran dag sundmenn, foreldrar og foreldraráð.