Fréttir

Sund | 3. febrúar 2010

Skautaferð yngri hópa

Farið var í skautaferð í Skautahöllina í Laugardal sl. föstudag. Um 80 krakkar sem æfa sund með yngri hópum UMFN og Keflavík fóru í ferðina með þjálfurum sínum. Sjá mátti sundmenn okkar taka góðar sveiflur á skautasvellinu og gleðin skein úr hverju andliti eins og meðfylgjandi myndir sýna. Skautaferðin heppnaðist einkar vel og skemmtu allir sér konunglega.