Fréttir

Skemmtileg grillveisla í Sólbrekkuskógi
Sund | 24. júní 2013

Skemmtileg grillveisla í Sólbrekkuskógi

Síðasta laugardag fóru sundmenn ÍRB sem kepptu á UMÍ og þeir sem eru að fara á AMÍ ásamt fjölskyldum í Sólbrekkuskóg og áttu saman skemmtilega stund í frábæru veðri. Sólin var sleikt á meðan nokkrir tugir hamborgara voru grillaðir. Eftir matinn var brugðið á leik og keppt í ýmsum þrautum. 

Takk allir sem lögðuð vinnu í skipulag og undirbúning dagsins!

Takk kærlega fyrir samveruna öll þið sem komuð og áttuð með okkur skemmtilega stund :)