Fréttir

Skemmtilegt bíómaraþon
Sund | 18. ágúst 2013

Skemmtilegt bíómaraþon

Meira en 40 sundmenn vöknuðu snemma á laugardagsmorguninn til þess að horfa á þrjár Mighty ducks myndir sem voru gerðar áður en flest þeirra voru fædd. Takk Eddi fyrir að gefa okkur aðgang að salnum í Myllubakkaskóla.

Sundmennirnir komu með dýnur, kósýföt og snarl til þess að láta fara vel um sig meðan þau horfðu öll saman á þessar myndir sem einmitt fjalla mikið um íþróttaandann og vinskap.

Í hádeginu fengum við okkur pitsu og frábæra eftirrétti sem Sylwia kom með í tilefni afmælis síns.

Morguninn var frábær og allir skemmtu  sér vel.