Fréttir

Skemmtilegt jólamót
Sund | 5. desember 2012

Skemmtilegt jólamót

Jólamótið var skemmtileg samverustund við laugina þar sem 150 sundkrakkar kepptu. Allir 10 ára og yngri fengu verðlaunapening fyrir þáttökuna og jólasveinninn gaf krökkunum mandarínur.  Sundmenn af öllum stigum kepptu á mótinu allt frá Löxum og upp úr og einnig úr öllum laugum sem æft er í. Mótið gekk mjög vel og var hin besta skemmtun og ekki sakaði að við kláruðum hálftíma fyrir áætlun. Bestu þakkir til allra foreldra sem lögðu sitt af mörkum og aðstoðuðu við mótshaldið eða í undirbúningi mótsins. Næsta svona mót verður um páskana og við hlökkum strax til enda róleg og góð skemmtun að mæta á sundmót.

Hér eru úrslit af mótinu bæði eftir greinum og nafni.