Fréttir

Sund | 14. janúar 2012

Skráðu vin í sund og fáðu afslátt á æfingagjöldunum!

Kæru sundmenn og foreldrar í ÍRB.

 

Næstu 3 vikurnar (til og með 1.febrúar 2012) verður ný leið í

boði við að skrá nýjan sundmann í sund.

 

Nú geta þeir sem fá nýjan sundmann til þess að skrá sig og byrja að æfa sund hjá UMFN eða KEFLAVÍK fengið afslátt af æfingagjaldi sínu.  

Afslátturinn verður sú upphæð sem nýi sundmaðurinn okkar greiðir í æfingagjöld í einn mánuð.

Þið fáið vin ykkar eða einhvern sem þið þekkið og hefur áhuga á að prófa að æfa sund til að koma á prufuæfingu i Vatnaveröld.                 

 

Ef viðkomandi skráir sig á æfingar út tímabilið og hefur nefnt nafn tilvísunarvinar á prufuæfingunni og skráð hann á skráningarblað fær tilvísunarvinurinn afslátt sem nemur öðrum mánuði æfingargjalda hjá nýja vininum.

Prufuæfing er hvern miðvikudag kl. 14.30 -15.30 og er Hjördís þjálfari á staðnum til þess að aðstoða nýja meðlimi að finna æfingahóp við hæfi.

 

ATH: Ef þú skráir tvo vini færðu tvo mánuði í afslátt o.s.fv.