Fréttir

Sund | 13. ágúst 2011

Skráning fer vel af stað

Skráningar fara vel af stað og nú þegar hafa yfir 100 sundmenn skráð sig. Við hvetjum alla sem syntu með okkur á sl. ári og ætla að vera með í ár að skrá sig fyrir 17. ágúst. Einhverjir hópar eru við það að fyllast og verður þá settur upp biðlisti. Þegar pláss losnar verður þeim sem eru á biðlista boðið plássið. Nýir meðlimir verða metnir miðvikudaginn 17. ágúst í Vatnaveröld. Spennandi ár framundan hjá sundfólkinu okkar! Hlökkum til að hitta alla aftur.