Skráning hafin á sundæfingar!
Skráning er hafin á sundæfingar hjá Sundráði ÍRB!
Þeir sem æfðu með okkur síðasta vetur skrá sig í hóp samkvæmt þessum lista.
Nýjir sundmenn mæta á prufuæfingu og finna réttan hóp í samráði við þjálfara.
Næsta prufuæfing er í Vatnaveröld föstudaginn 21. ágúst kl. 17-18.
Allar nánari upplýsingar er að finna hér á síðunni undir Vertu með.
Æfingar eru hafnar hjá elstu hópunum.
Háhyrningar byrja að æfa 19. ágúst og yngri hópar 24.ágúst.